Í versta veðri janúarmánaðar hélt ICEPRO mjög góðan fund um stöðu rafrænna innkaupa.
Þrátt fyrir töluverð forföll vegna veðurs mættu yfir 30 manns á fundinn sem var einstaklega upplýsandi og skemmtilegur.
Þór Gunnlaugsson verkefnisstjóri hjá Landspítalanum greindi frá ferli þeirra við uppbyggingu rafrænna samskipta við birgja sína en Landspítalinn sendir frá sér pantanir og tekur við reikningum rafrænt.
Rafn Rafnsson stofnandi Timjan ehf. sem nú er hluti af Origo hf. sagði frá innkaupa- og beiðnakerfi þeirra sem er íslenskt forrit í notkun hjá mörgum heilbrigðisstofnunum og fleiri stórum fyrirtækjum. Timjan á að geta sent pantanir á XML formi til framtíðar þó enn sé enginn að nota það.
Þórður Bjarnason stjórnandi innleiðingar á rafrænum innkaupum hjá Icelandair Group fór yfir það ferli sem er í gangi hjá þeim við innleiðingu rafrænna innkaupaferla við alla sína birgja. Þetta verkefni gæti haft góð áhrif í íslensku viðskiptalífi til framþróunar rafrænna viðskipta.
Bergþór Skúlason stjórnarmaður hjá FUT og sérfræðingur hjá Fjársýslu ríkisins fræddi fundarmenn um þá staðla sem liggja að baki rafrænum innkaupum og þær breytingar sem eru í farvatninu.
Góðar umræður sköpuðust eftir fundinn um ýmis úrlausnarmál sem eru efni í fleiri fundi.