Þann 12. desember n.k. kl. 15 mun Icepro standa fyrir kynningu á nýrri tækniforskrift fyrir samevrópskan rafrænan reikning TS-236.
Viðburðurinn verður haldinn í Borgartúni 35, Húsi atvinnulífsins á fyrstu hæð.
Farið verður yfir þær breytingar sem hafa átt sér stað frá fyrri tækniforskrift TS-136.
Allir opinberir aðilar eiga að geta tekið á móti skeytum á þessu formi frá og með 18. apríl 2019. Kynningin er nauðsynleg öllum þeim sem koma að hönnun og forritun rafrænna reikninga.
Kynnir verður Bergþór Skúlason formaður tækninefndar FUT hjá Staðlaráði. Með honum verður þýðandi staðalsins Georg Birgisson.
Boðið verður upp á léttar jólaveitingar.
Vinsamlegast áframsendið boðið á þá sem telja má að þurfi að kynna sér staðalinn.
Stjórn Icepro
Skráning á viðburðinn er á vefsíðu Icepro undir Viðburðir.